Námskeið
Skráning

Óháð ráðgjöf
Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Námskeið haustmisseris
Námskeið haustsins 2021 koma brátt á vefinn okkar. Fylgstu með! Boðið verður upp á bæði staðnám og fjarnám.

Almenn tölvunámskeið
Mikið úrval af stuttum og skemmtilegum námskeiðum um Office, Windows, Word, Excel, PowerPoint, Outlook, Access,...

Excel námskeið fyrir alla
Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun
Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...
-
Óháð ráðgjöf
-
Námskeið haustmisseris
-
Almenn tölvunámskeið
-
Excel námskeið fyrir alla
-
Árangursrík verkefnastjórnun
Námskeið á næstunniSmelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri. |
WordPress vefsíðugerð
Almennt um námskeiðið
Viltu búa til þína eigin vefsíðu til að kynna þig eða fyrirtæki þitt á netinu? Þú ert ef til vill í fyrirsvari fyrir lítið fyrirtæki, klúbb eða félag sem þarf að hafa vefsíðu á Internetinu en vilt sjálf(ur) geta búið til frambærilega síðu með WordPress. Þetta námskeið okkar er sérsniðið að þeim sem vilja búa til og viðhalda vefsíðu.
Á námskeiðinu eru kennd grunnatriði þess að búa til, stjórna og kynna vefsíðu á Internetinu.
Forkröfur
Ekki eru gerðar kröfur um reynslu af að búa til eða reka vefsíðu né að kunna að nota WordPress. Aðeins er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi almenna tölvuþekkingu og hafi notað vefinn til eigin nota. Námskeiðið er mjög ítarlegt svo það er mikilvægt að þátttakendur geti gefið sér tíma á milli kennsludaga til að fara yfir efnið og undirbúa næsta tíma.
Dagskrá
Eftirfarandi er m. a. kennt á námskeiðinu:
- Að nota stjórnborð (dashboard) WordPress þaðan sem öllum aðgerðum í WordPress er stjórnað.
- Að búa til eigin vefsíðu þar sem hægt er að birta fréttir, upplýsingar, myndir, myndbönd og umsagnir.
- Að móta útlit vefsíðunnar með því að nota tilbúin sniðmát og einfaldar útlitsskipanir.
- Að skipuleggja vefinn með síðum, flokkum og merkingum.
- Að setja upp efni sem eykur líkur á að síðan birtist í Google leit.
- Að halda utanum og stjórna myndasöfnum.
- Að bæta við alls konar einingum sem auka notagildi síðunnar.
- Að bæta við smáforritum (Widgets), innsláttarformum fyrir tengiliði, vegakortum og fleira
Markmið
Að loknu námskeiði átt þú að geta búið til vandaðan vef fyrir þig, fyrirtæki þitt eða félagsskap sem þú tilheyrir.
Kennari/leiðbeinandi
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Valgerður Guðrún Halldórsdóttir, verkfræðingur
Kennslugögn
Með námskeiðinu fylgir ensk kennslubók um WordPress


Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.