Námskeið
Skráning

Óháð ráðgjöf
Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Námskeið haustmisseris
Námskeið haustsins 2021 koma brátt á vefinn okkar. Fylgstu með! Boðið verður upp á bæði staðnám og fjarnám.

Almenn tölvunámskeið
Mikið úrval af stuttum og skemmtilegum námskeiðum um Office, Windows, Word, Excel, PowerPoint, Outlook, Access,...

Excel námskeið fyrir alla
Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun
Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...
-
Óháð ráðgjöf
-
Námskeið haustmisseris
-
Almenn tölvunámskeið
-
Excel námskeið fyrir alla
-
Árangursrík verkefnastjórnun
Námskeið á næstunniSmelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri. |
Excel II framhaldsnámskeið
Almennt um námskeiðið
Framhaldsnámskeið í Excel er fyrir þá sem vilja auka notagildi Excel og nota það við flóknari verkefni. Lögð er áhersla á atriði sem auðvelda og flýta vinnslu með Excel.
Forkröfur
Mikilvægt er að þeir einir sæki námskeiðið sem hafa unnið við eða prófað allt af því sem talið er upp í lýsingu okkar á námskeiðinu Excel I svo námskeiðið nýtist til fulls.
Dagskrá
-
Upprifjun helstu atriða frá grunnnámskeiðinu og kynning nýjunga í Excel. Farið er ítarlega í föll, samtengingu skjala og útlitsskipanir.
-
Myndritagerðin tekin ítarlega fyrir og sérstaklega skoðaðar flóknari gerðir myndrita eins og t.d. bólurit, myndrit með 2 ásum, myndrit með logarithmiskum kvarða ofl..
- Notkun flókinna reiknifalla og formúlur samsettar úr mögum föllum.
- Smíði eigin falla.
-
Innflutningur og meðhöndlun stórra gagnasafna. Kennt að setja upp lista, leita, raða og sía færslur eftir margskonar skilyrðum.
-
Uppsetning og notkun veraldarvefs- og gagnagrunnsfyrirspurna (Database- /Web Query).
-
Tól og hjálpartæki í Excel eins og Goal Seek, Data table, Scenario manager og Solver.
- Kynning á gerð fjölva (macro) og veltitaflna (Pivot)
Markmið
Að loknu námskeiði á þátttakandinn að verða orðinn mjög fær Excel notandi sem hefur innsýn í alla helstu eiginleika forritsins.
Leiðbeinandi
Halldór Kristjánsson verkfræðingur og Valgerður Halldórsdóttir, verkfræðingur og Ph.D.
Kennslubók/kennslubækur
Excel kennslubók eftir Halldór Kristjánsson


Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.