Námskeið
Skráning

Óháð ráðgjöf
Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Námskeið haustmisseris
Námskeið haustsins 2021 koma brátt á vefinn okkar. Fylgstu með! Boðið verður upp á bæði staðnám og fjarnám.

Almenn tölvunámskeið
Mikið úrval af stuttum og skemmtilegum námskeiðum um Office, Windows, Word, Excel, PowerPoint, Outlook, Access,...

Excel námskeið fyrir alla
Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun
Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...
-
Óháð ráðgjöf
-
Námskeið haustmisseris
-
Almenn tölvunámskeið
-
Excel námskeið fyrir alla
-
Árangursrík verkefnastjórnun
Námskeið á næstunniSmelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri. |
Access II fyrir lengra komna
Almennt um námskeiðið
Þetta námskeið er framhald námskeiðsins Access I og ekki ætlað byrjendum. Þátttakendur verða að hafa reynslu af smíði gagnagrunna í Access til þess að hafa full not af námskeiðinu.
Forkröfur
Þátttakandi þarf að hafa staðgóða þekkingu á, og reynslu af, notkun Access og hafa smíðað einfalda gagnagrunna með innsláttarmyndum, tengdum töflum og fyrirspurnum.
Dagskrá
-
Inn- og útflutningur gagna t.d. Excel, fastlengdarfærslum og textaskrám.
-
Endurnýting á Access hlutum í öðrum gagnagrunnum.
-
Töflutengingar t.d. við Excel, Outlook, ODBC eða textaskrár.
-
Gerð fjölbreyttra fyrirspurna s. s. CrossTab (Pivot), Append, Delete, Update, Make table, Unmatch og Find duplicates.
-
Öryggismál og aðgangsstýringar.
-
Skipting gagnagrunns, sjálfvirk afritun á milli miðlara.
-
Kynning á fjölvagerð (Macro) til sjálfvirkni.
-
Einnig er bætt við þekkinguna á formum og skýrslum auk skilgreininga á töflum.
Markmið
Að loknu námskeiðinu á þátttakandinn að hafa til að bera þá þekkingu sem þarf til þess að búa til fjölbreytta gagnagrunna með alls konar sjálfvirkni til ýmisa nota.
Leiðbeinandi
Halldór Kristjánsson, verkfræðingur og sérfræðingur í Access
Námsgögn
Using Microsoft Office Access, kennslubók á ensku


Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.