Námskeið
Skráning

Óháð ráðgjöf
Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Námskeið haustmisseris
Námskeið haustsins 2021 koma brátt á vefinn okkar. Fylgstu með! Boðið verður upp á bæði staðnám og fjarnám.

Almenn tölvunámskeið
Mikið úrval af stuttum og skemmtilegum námskeiðum um Office, Windows, Word, Excel, PowerPoint, Outlook, Access,...

Excel námskeið fyrir alla
Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun
Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...
-
Óháð ráðgjöf
-
Námskeið haustmisseris
-
Almenn tölvunámskeið
-
Excel námskeið fyrir alla
-
Árangursrík verkefnastjórnun
Námskeið á næstunniSmelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri. |
Windows 10 fyrir byrjendur
Almennt um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem eru að byrja að nota tölvu og Windows 10 en einnig þá sem hafa uppfært tölvuna úr eldra Windows stýrikerfi í Windows 10. Lögð er áhersla að kynnast stýrikerfinu og tölvunni vel og á ýmis atriði sem auka afköst og öryggi við tölvunotkun. Auk þess eru tekin fyrir mikilvæg atriði varðandi tölvuna sjálfa og skráarkerfi hennar.
Dagskrá
- Mikilvæg atriði varðandi tölvunotkun og samspil forrita og Windows
- Uppsetning og ræsing forrita, uppsetning Start valmyndar og helstu eiginleikar tölvu og stýrikerfis
- Skrárkerfi tölvunnar og uppsetning eigin skjalakerfis, möppukerfis og stofnun skjala
- Stillingar og stjórnborð Windows til að laga tölvuna að óskum notandans og þörfum
- Hvernig má tryggja sem best öryggi við tölvunotkun á Internetinu og vinna bug á veirum og annarri óværu
- Uppsetning prentara og tengingar tækja og búnaðar við tölvuna
- Gagnleg hjálparforrit sem fylgja með Windows sem gagnast við alla tölvunotkun
Markmið
Að námskeiði loknu á þátttakandinn að hafa öðlast öryggi við notkun tölvunnar og Windows til margs konar verka.
Kennari/kennarar
Halldór Kristjánsson og Valgerður Halldórsdóttir
Kennslubók/kennslubækur
Ný kennslubók um Windows 10


Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.