Photoshop Elements ljósmyndavinnsla

Almennt um námskeiðið

Þetta er frábært námskeið fyrir þá sem vilja vinna ljósmyndirnar sínar meira en hægt er að gera með til dæmis Picasa eða þeim forritum sem oft fylgja ljósmyndavélum.  Námskeiðið er ágætt framhald fyrir þá sem hafa sótt námskeið okkar um stafræna ljósmyndun og Picasa.   Photoshop Elements, frá Adobe, hefur flesta þá eiginleika Photoshop sem mest eru notaðir við margmiðlun, mynd- og ljósmyndavinnslu. Einnig eiga margir Photoshop Elements þar sem það fylgir með mörgum skönnum og stafrænum myndavélum og er ódýrt.  Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem vilja læra að nota Photoshop Elements til fulls við vinnslu ljósmynda með þessu skemmtilega og öfluga forriti.  

Forkröfur

Æskilegt er að þátttakendur hafi almenna tölvukunnáttu og séu vanir og nota myndavélar.  

Dagskrá

 

  • Innlestur ljósmynda, flokkun þeirra og merking, leit að myndum eftir ýmsum atriðum s.s. fólki, stöðum, atburðum og texta.
  • Deiling mynda á Internetnu s.s. á facebook, twitter, Vimeo, YouTube og með tölvupósti.
  • Gerð [og prentun) ljósmyndabóka, dagatala með myndum, veggspjalda og prentun mynda.
  • Fljótlegar leiðréttingar og lagfæringar á ljósmyndum, nöfn einstaklinga og tökustaðir mynda settir inn.
  • Kennt að nota Quick-, Guided- og Expertham Photoshop Elements til alls konar breytinga og lagfæringa á ljósmyndum.
  • Helstu verkfæri til að vinna ljósmyndir, fjarlægja hluti úr þeim, sameina margar myndir í eina, laga liti og birtu, andlitslagfæringar og margt fleira.
  • Lagskipting mynda og þýðing hennar fyrir leiðréttingar og lagfæringar.
  • Myndum breytt með effektum og hlutir úr einni mynd færðir í aðra mynd með afritun eða með því að fjarlægja þá alveg.
  • ....

Photoshop Elements er þannig að gert að hægt er að gera marga af ofangreindum hlutum á einfaldan og fljótlegan hátt og því auðvelt að læra það sem gæti virst flókið við fyrstu sýn.

Markmið

Að loknu námskeiði á þátttakandinn að geta unnið ljósmyndir í tölvu og prentað þær, þekkja mismunandi myndform og geta búið til og unnið við alls konar myndir með Photoshop Elements.

Kennari/kennarar

Sigurður Jónsson og Halldór Kristjánsson  

Kennslubók/kennslubækur

Notuð er kennslubók frá Adobe úr hinni þekktu bókaröð "Classroom in a book". Með bókinni fylgir diskur með æfingum og ítarefni.

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.