Óháð ráðgjöf um fjarskipta- og
upplýsingatækni
Í heimi þar sem
stöðugar breytingar eiga sér stað þurfa fyrirtæki og
einstaklingar aðstoð við að bregðast við breytingunum
hratt og örugglega. Tölvu- og verkfræðiþjónustan hefur
veitt íslenskum fyrirtækjum óháða ráðgjöf um fjarskipta-
og tölvumál frá árinu
1986. Vegna þess að við seljum ekki lausnir og höfum ekki
hagsmuna að gæta við val lausna geta þeir, sem til okkar
leita, treyst því að hagsmunir þeirra einna eru
hafðir að leiðarljósi.
Fjölbreytt reynsla og mikil
þekking
Reynsla okkar af ráðgjöf spannar flest
stærstu svið íslensks atvinnulífs, sjávarútveg, fjármálaheiminn, iðnað og
framleiðslu, verslun, heilbrigðisgeirann, sveitarfélög, opinberar stofnanir og opinber
fyrirtæki. Mikil breidd er í þekkingu starfsmanna okkar, allt frá vali á
ritvinnsluhugbúnaði upp í útboð, samninga og verkeftirlit á stórum hugbúnaðar- og
tölvukerfum.
Ráðgjafar okkar hafa fjölbreytta menntun og reynslu úr atvinnulífinu sem nýtist við
ráðgjöf okkar við fyrirtæki.
Helstu
svið ráðgjafar
Við bjóðum ráðgjöf um flest sem
viðkemur fjarskiptum og tölvutækni. Meðal helstu þekkingarsviða okkar má telja:
Ráðgjöf vegna nýjunga og þróunar.
Gerð
öryggisstefnu og áætlana um samfelldan rekstur
Þafagreining fyrir síma-, fjarskipta-,
tölvu- og hugbúnaðarkerfi.
Netskipulagning.
Ráðgjöf um uppbyggingu veraldarvefja og
netlausna.
Gerð útboðsgagna, útboð, val
samstarfsaðila og samningagerð.
Verkeftirlit með innleiðingu tölvu- og
fjarskiptakerfa og við hugbúnaðargerð.
Listinn hér að ofan er ekki tæmandi.
Leitaðu því nánari upplýsinga hjá okkur um þá ráðgjöf sem við getum veitt í
síma 520 9000 eða með því að smella á veftengla sem eru á þessari síðu.
Allar nánari upplýsingar gefur: Halldór
Kristjánsson,
framkvæmdastjóri.