Gæðaviðmiðun fyrir atvinnurekendur, ráðningarmiðlanir og
starfsfólk: Próf og hæfnismat er mikilvægt fyrir alla þá sem þurfa að fá staðfesta þekkingu og færni í tölvunotkun. Með alþjóðlega viðurkenndum prófum eru gæði og samræmi mats á þekkingu tryggt.Tölvu- og verkfræðiþjónustan býður margar gerðir prófa. Öll eru þessi próf stöðluð og alþjóðlega viðurkennd og gefa því góða vísbendingu um þekkingu þess sem þau hefur tekið. Að loknu hverju prófi er afhent viðurkenning til próftakans sem hann getur framvísað þeim hvar sem er í heiminum til þess að sanna þekkingu sína. Tímasetningar og verð Öll próf eru haldin á föstudögum frá klukkan 13:00-17:00. Einnig getum við haldið próf á öðrum tímum ef nægilegur fjöldi þátttakenda fæst. Bóka þarf með 1-2ja daga fyrirvara í flest próf sem þýðir að bókun verður að hafa borist okkur fyrir hádegi á fimmtudegi (ef próf er á föstudegi). Verð flestra prófa er háð gengi gjaldmiðla og því er bent á að hafa samband við skrifstofu okkar til að fá upplýsingar um verð prófa. Taflan hér á eftir gefur hugmynd um verð algengra prófa. Hvert ECDL/TÖK próf kostar kr. 2.900 staðgreitt en þau eru alls sjö. Nemendur hjá okkur njóta afsláttar. Hvert ECDL/TÖK skírteini ( 1 fyrir sjö próf) kostar kr. 3.900 staðgreitt. Hvert GMAT próf kostar 250 USD. Aðeins er hægt að greiða prófgjaldið við skráningu á vef mba.com. VUE og Prometric próf (MCP ofl.) kosta mismunandi mikið og er verð þeirra háð gengi á hverjum tíma. Hringið í 520 9000 til að fá nánari upplýsingar. Mikilvægt er að leita upplýsinga um verð á örðum prófum en ECDL/TÖK prófunum þar sem þau kosta mismikið. Áskilinn er réttur til að breyta verði án fyrirvara. Frá og með 1. janúar 2006 höfum við boðið hin þekktu GMAT próf sem eru lykillinn að aðgangi hjá mörgum af þekktustu viðskiptaháskólum heims. Prófin eru haldin eftir þörfum en æskilegt að menn skrái sig í próf sem haldin eru á föstudögum. Við getum prófað tvo í senn þannig að ef aðsókn er mikil getur þurft að dreifa fólki á daga. Því er æskilegt að haft sé samráð við okkur áður en prófdagur er valinn. Allar nánari upplýsingar má fá með því að hringja í okkur í síma 520 9000 eða með því að tengjast vefsíðu GMAT prófanna. Þá er hægt að skrá sig í GMAT prófið með því að smella hér. Microsoft og önnur sérfræðipróf í samvinnu við Prometric og Pearson VUE Þessi próf eru gerð fyrir atvinnumenn sem vinna með eða þjónusta hugbúnað frá Microsoft og öðrum framleiðendum hugbúnaðar. Sem dæmi um próf má nefna: MCP-, MCSE-, MCSD-sérfræðigráður Microsoft, CompTIA próf, Siebel-, Lotus-, Informix- og Novell próf.Þessi listi gefur hugmynd um þau próf sem eru í boði (smellið hér til að fá nánari upplýsingar hjá VUE)
Prófin eru unnin á tölvu á ensku. Heimasíða Microsoft sérfræðiprófanna. ECDL - Evrópskt tölvuökuskírteini (TÖK) Tölvuökuskírteinið (TÖK), er evrópskt skírteini, sem segir til um tölvukunnáttu þeirra sem eru handhafar slíks skírteinis. Tölvu- og verkfræðiþjónustan hefur samning við Skýrslutæknifélag Íslands um að halda slík próf. Taka verður sjö, samræmd, evrópsk próf, til að öðlast Tölvuökuskírteini. Með því er orðinn til samevrópskur staðall til að meta tölvukunnáttu. Með því að smella á þessa tengla má fá nánari upplýsingar um námsmarkmið fyrir ECDL prófin:Skírteinið staðfestir hæfni handhafans við starfsmat eða starfsumsókn. Tenglar við prófmiðstöðvar sem við umbjóðum
Próf - lykill að framtíð! |
||||||||
|
|
||||||||
|
||||||||