Stillingar á helstu Internetforritum fyrir MacintoshOS

Póstforrit

Til þess að hægt sé að senda og taka á móti tölvupósti verða réttar stillingar að vera til staðar í forritunum. Fjölmörg forrit má nota til sendinga á tölvupósti og verður þeim helstu lýst hér að neðan.

Eudora

Í tölvupóstforritinu Eudora er það mjög mismunandi eftir útgáfum forritsins hvar eftirfarandi stillingar eru settar inn í forritið. Í flestum nýrri útgáfum er valblaðið Special kallað fram og á því smellt á Settings. Þá birtist eftirfarandi valmynd. Í POP account er notandanafn viðkomandi sett fyrir framan @-merkið. Í reitinn Real Name, er fullt nafn notandans skrifað.

 

Næst víkjum við að valmyndinni Personal Information. Hún ætti að líta út eins og eftirfarandi valmynd sýnir okkur.

Þá er komið að valmyndinni Hosts, en í henni eru stillingar sem nauðsynlegar eru til þess að póstforritið geti komið póstinum frá sér og náð í þann póst sem bíður notandans. Ætti sú valmynd að líta út eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

MacTCP - TCP/IP

Það er mismunandi hvaða útgáfu af stýrikerfi Macintosh notendur eru með en þumalputtareglan er eftirfarandi:

Stýrikerfi 7.5 eða eldra = MacTCP
Stýrikerfi 7.6 eða nýrra = TCP/IP

Notendur geta séð hvort forritið þeir eru með einfaldlega með því að fara undir Eplisvalblaðið og opna stjórnborðið. Þá sjá menn annaðhvort forritið MacTCP eða TCP/IP.

Til þess að sjá hvernig á að stilla Macintosh tölvuna og MacTCP eða TCP/IP skal smella hér.

Heimasíða | Tölvunám | Ráðgjöf | Netklúbbur | Bækur | Fyrirtækið | Tölvuvísir

Heimasíða (Our home page)
okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.