Uppsetning á innhringingu fyrir PC tölvur |
|
![]() |
Þegar ný innhringitenging við Tölvu- og verkfræðiþjónustuna er sett upp þarf að tvísmella á táknmyndina My Computer, sem finna má á skjáborðinu efst til vinstri þegar tölvan hefur verið ræst. Síðan er tvísmellt á Dial Up Networking. Í glugganum Dial Up Networking kemur í ljós táknmynd sem nefnist Make New Connection. |
Tvísmellt er á myndina New Connection og birtist þá mynd í líkingu við þá sem sjá má hér.
![]() |
Í efstu línuna er fært inn heiti tengingarinnar. Gott er að gefa henni heiti sem minnir á að hér er um að ræða Internettengingu í gegnum Tölvu- og verkfræðiþjónustuna. Þessi tenging má ekki bera sama heiti og sú sem er fyrir á tölvunni. Tölvan ætti sjálf að skynja mótaldið sem kemur fram í línunni Select a device. Ef það gerist ekki er smellt á örina við hliðina á mótaldsheitinu og rétta mótaldið valið. Athugið að það getur skipt máli varðandi samskiptin að rétt mótald sé valið. |
Stillingarnar sem gerðar eru á mótaldinu eru sjálfgefnar en til öryggis eru þær sýndar hér eins og þær eiga að vera þegar tengst er Internetþjónustu Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar. Smellt er á hnappinn Configure hér að ofan. Við það birtist mynd með 3 flipum: |
![]() |
Fyrstur er valinn flipinn General. Í honum er heiti mótaldsins sýnt efst, þá það tengi (Port) sem mótaldið er tengt við (COM1, COM2, COM3 eða COM4) Þessu næst er stilling fyrir hljóðstyrkinn (Speaker Volume) í mótaldinu og loks hámarkshraði (Maximum Speed). Hljóðstyrksstillingin skiptir ekki máli og er smekksatriði. Hins vegar er valinn er mesti hraði sem mótaldið leyfir sem er oftast 115.200. Aðrir algengir hraðar eru 57.600, 38.400 og 19.200. Best er að velja hæsta hraðann en lækka hann ef tengingin er óstöðug. Smellt er á flipann Connection til þess að skoða stillingar sem lúta að tengingunni sjálfri. |
![]() |
Stillingarnar eru eins hafðar eins og myndin sýnir, þ. e. 8 Data bits, Parity None og Stop bits 1. Í reitinn Wait for dial tone before dialing skal ávallt merkja nema hringt sé í gegnum símstöð. Þá þarf stundum að taka hakið úr með því að smella í reitinn. Þetta er vegna þess að sumar símstöðvar senda valsón til mótaldsins sem er ekki samkvæmt stöðlum. Mótaldið telur sig því ekki ná sambandi og hringir aldrei. Aðrir reitir eiga að vera fylltir út eins og myndin sýnir. Reiturinn Disconnect a call if idle for more than 10 mins ætti alltaf að vera fylltur svona út. Þetta tryggir það að lagt er á eftir 10 mínútur ef ekkert er verið að gera á Internetinu. Þannig sparast símgjöld ef gleymist að leggja á. Loks er smellt á Advanced flipann til þess að stilla betur ákveðin atriði vegna tengingarinnar. |
| Í Advanced myndinni á
að merkja við eins og sýnt er hér til hliðar.
Ekki er víst að sá hluti myndarinnar sem heitir Use Error Control sé sýnilegur. Ef hann er sýnilegur á að merkja hann eins og myndin sýnir. Í Modulation Type gæti á að standa Standard, eða þá að hann er tómur. Ef eitthvað annað stendur í reitunum þá á að velja Standard. Reiturinn Extra Settings getur haft texta eða verið tómur. Honum er ekki breytt. Þegar stillingar eru eins og þær eiga að vera er smellt á OK og síðan aftur í myndinni Connection. Þá birtist á ný myndin af uppsetningu tengingarinnar og smellt er á hnappinn Next. |
![]() |
![]() |
Í þá mynd sem nú
birtist nægir að slá inn símanúmer innhringiþjónustu okkar, 588 1190. Ekki þarf að setja tölu í Area Code, enda svæðisnúmer óþörf hér á landi. Síðan er smellt á Next og birtist þá tilkynning þess efnis að allar nauðsynlegar upplýsingar séu til staðar til þess að tengjast Internetinu. Er þá smellt á Finish hnappinn og uppsetningin staðfest með þeim hætti. |
Glugginn Dial-Up Connection er nú aftur sýnilegur á skjánum með táknmyndinni fyrir nýju tengingunni. Ef ekki er búið að eyða gömlu tengingunni er tilvalið að gera það núna. Næsta skref er fólgið í því að smella með hægri hnappinum á táknmyndina og velja skipunina Properties úr valmyndinni sem birtist við þetta. Flipinn General er rétt út fylltur og þarf því ekki að skoða hann nánar en líta þarf á myndina Server Types og er því smellt á flipann með sama heiti. |
![]() |
Í spjaldinu sem þá birtist þarf einungis að merkja við Enable Software Compression og TCP/IP Ef ekki er valinn PPP: Internet,.... kosturinn í Type of Dialup Server þarf að laga það. ATHUGIÐ að aðrar tegundir af miðlurum (Servers) eins og CSLIP ganga ekki. Hér skal það einnig nefnt að ekki á að vera neitt í myndunum Scripting og Multilink þar sem þau atriði sem þar eru þarf ekki við tengingu við Internetmiðstöð Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar. Það síðasta sem þarf að athuga í uppsetningu fyrir innhringinguna er skoðað með því að smella á hnappinn TCP/IP Settings í myndinni Server Types. |
![]() |
Myndin TCP/IP
Settings á að vera stillt eins og sýnt er hér til hliðar.
Ekki þarf að setja inn neinar IP tölur þar sem þær koma allar frá innhringibúnaðinum. ATHUGIÐ: Ef settar eru inn tölur hér getur það leitt til óstöðugs sambands. |
Rétt er að vekja jafnframt athygli þeirra sem ræsa forritin (t. d. Outlook Express og Internet Explorer) og láta þau hringja sjálfkrafa inn að breyta þarf þeim stillingum í forritunum. Nánar má lesa um þetta í uppsetningum fyrir póstforrit eða vafra. Ef vandamál er með innhringinguna athugið þá þetta: |
![]() |
Þegar eldri tenging
við okkur er til staðar, eða tenging við aðra
Internetþjónustu hefur verið notuð kann að vera að rangar
stillingar séu á öðrum stað en í innhringiuppsetningunni.
Vitað er að þetta getur valdið truflunum og því eru notendur þjónustu okkar beðnir að kanna eftirfarandi atriði: Smellt er á hnappinn Start og síðan valinn kosturinn Settings-Control Panel og tvísmellt á táknmyndina Network. Tvísmellt er þessu næst á stillingarnar fyrir Dial-Up Adapter (Ath.: Stundum stendur TCP/IP fyrir framan). Þegar þetta er gert birtist mynd með mörgum valkostum sem þarf að fullvissa sig um að séu réttir. Því verður lýst hér á eftir hvernig best er að hafa þær. |
![]() |
Í spjaldinu IP Address
á að vera smellt í reitinn Obtain an IP address
automatically samanber myndina hér til hliðar.
Í spjaldinu WINS Configuration á að vera smellt í reitinn Use DHCP for WINS resolution og engar aðrar stillingar. Í spjaldinu Gateway á ekki að vera neitt útfyllt og hreinsa skal út stillingar sem eru til staðar, ef einhverjar. Í spjaldinu DNS Configuration þarf einungis að vera merkt við Disable DNS. |
|
|
Nú á allt að vera til reiðu og hægt að tengjast nýju innhringimiðstöðinn hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni. |
||||||||
|
||||||||