Vandamál sem koma upp á PC(Win95/98) tölvum

Vandamál í innhringingu

Mótaldið slítur alltaf sambandið eftir stutta stund.

Þetta er þekkt vandamál sem tengist oft á tíðum stillingum í mótaldinu. Mörg mótöld eru stillt þannig frá verksmiðjunni að þau leggja á ef ekkert er að gerast á línunni í stutta stund.Þetta vandamál má þó leysa á einfaldan hátt. Farið er í Dial Up Networking, smellt með hægri hnappnum á táknmyndina fyrir Tölvu og verkfræðiþjónustuna. Þar er ... valið Í reitnum Extra Settings er fært inn: S30=0 (Ess þrjátiíu jafnt og núll). Ef það virkar ekki þá er AT/T0 (a té skástrik té núll) fært inn í staðinn. 

Vandamál sem tengjast Netscape Navigator

Document contains no data

Ástæðan er sú að í tölvan sækir oft á tíðum vefsíður í minni. Þar geta síðurnar skemmst og af þeim sökum koma skilaboð um að síðan sé tóm.
Úrræði: Í Netscape er farið í valmynd sem kallast Network Prefrences og þaðan í Cache. Smellt er á hnappinn Clear Disk Cache og Clear Memory Cache. Í Netscape Communicator 4.0 er farið í Prefrences valmyndina og Advanced valið. Smellt er á plúsinn fyrir framan Advanced birtast fleiri möguleikar. Smellt er á Cache og síðan sömu skipanir framkvæmdar og eru efst í málsgreininni.

"Could not locate host" eða "HTTPd error"

Oft má rekja þessar villur til rangra Proxy stillinga.
Úrræði: Í Netscape er valið Options - Network Preferences - Proxies. Merkt er við Manual Configuration og síðan smellt á View. Eftirfarandi Proxie stillingar ættu að vera í gildi:
HTTP Proxy: valla.tv.is - port 8080
FTP Proxy: valla.tv.is - port 8080
SECURITY Proxy: valla.tv.is - port 8080

General Protection Fault

Þetta er vandamál sem tengist öðru en uppsetningu á hugbúnaði. General Protection Fault þýðir að stýrikerfið eða forritin hafa verið að rekast á í minni tölvunnar. Oft getur verið erfitt að koma í veg fyrir þetta. Athugið hvort einhver minnislæg forrit eða reklar séu að rekast hvert á annað. Lagfæring á þessu krefst talsverðrar kunnáttu í uppsetningu á tölvum.

Flutningur á erlendum vefjum gengur afar treglega.

Algengasta skýringin er sú að á vissum tímum sólarhringsins er álagið á netið mjög mikið og símastrengurinn frá Íslandi til útlanda er ekki fullnýttur. Þetta getur leitt af sér tregan gagnaflutning. Minnsta álagið á netið er venjulega snemma morguns.

Vandamál sem tengjast Eudora 1.5.4. tölvupósti

Pósturinn fullur af furðutáknum

Trúlegasta skýringin er sú að sendandinn hafi stillt Eudora á Quoted Printable (QP). Til að slökkva á því þarf að fara í Special/Configuration og taka hakið úr May use QP.

Villumeldingin "Host not found" eða "Domain not found"

Farið er í Tools valmyndina og Options. Þar sem stendur POP account ætti að vera eftirfarandi "notandanafn@mail.tv.is". Því er breytt í "notandanafn@194.144.236.5". Því næst er smellt á Hosts hnappinn fyrir neðan Getting Started. Í SMTP ætti að vera eftirfarandi "mail.tv.is". Því er breytt í "194.144.236.5".

Heimasíða | Tölvunám | Ráðgjöf | Netklúbbur | Bækur | Fyrirtækið | Tölvuvísir

Heimasíða (Our home page)
okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.