Námskeið
Skráning

Óháð ráðgjöf
Við veitum óháða ráðgjöf um UT og heilbrigðisverkfræði. Hundruðir ánægðra viðskiptavina. Hafðu samband við okkur.

Námskeið haustmisseris
Námskeið haustsins 2021 koma brátt á vefinn okkar. Fylgstu með! Boðið verður upp á bæði staðnám og fjarnám.

Almenn tölvunámskeið
Mikið úrval af stuttum og skemmtilegum námskeiðum um Office, Windows, Word, Excel, PowerPoint, Outlook, Access,...

Excel námskeið fyrir alla
Excel er mikilvægasta verkfæri skrifstofufólks, bókara, endurskoðenda, stjórnenda, verkfræðinga, vísindamanna og...

Árangursrík verkefnastjórnun
Afar gagnlegt og hnitmiðað nám fyrir þá sem koma að stjórnun verkefna, hvort sem þau eru stór eða lítil. Þrautreynd...
-
Óháð ráðgjöf
-
Námskeið haustmisseris
-
Almenn tölvunámskeið
-
Excel námskeið fyrir alla
-
Árangursrík verkefnastjórnun
Námskeið á næstunniSmelltu á "Sjá öll námskeið" neðst í töflunni til að sjá fleiri námskeið eða notaðu valmyndina til vinstri. |
Excel Pivottöflur og - gröf
Pivottöflur (veltitöflur) eru notaðar til þessa að greina gögn úr upplýsingum sem er að finna t.d. í Excel eða Access töflum. Hægt er að setja upp alls konar skilyrði fyrir birtingu niðurstaðna og velta upp margskonar spurningum sem (oftast) er hægt að svara með gerð Pivottöflu. Hægt er að bora ofan í gögnin í pivottöflunni til að sjá upplýsingarnar í öðru ljósi og með annari uppsetningu en er í Excel eða Access töflu. Hægt er að tengjast ákveðnum töflum á Internetinu og vinna úr þeim.
Forkröfur
Til þess að hafa fullt gagn af þessu námskeiði þarf þátttakandinn að vera nokkuð fær í Excel og eiga auðvelt með að framkvæma allar algengar aðgerðir.
Dagskrá
Á námskeiðinu er farið ítarlega í notkun pivottaflna (veltitaflna) í Excel:
- Kennt að setja upp veltitöflur frá grunni, velja dálka og línur og vinna úr þeim gögnum sem fara í pivottöfluna.
- Kennt að setja upp margar víddir í veltitöflum, bora niður í gögn og sækja gögn í aðrar töflur og grunna.
- Kennt er að setja upp veltigraf/-myndrit byggt á upplýsingum úr veltitöflu.
- Stuðst er við margvísleg gögn í æfingum, jafnt úr viðskiptum sem vísindum.
Markmið
Að loknu námskeiði á þátttakandinn að vera orðinn sjálfbjarga við að gera flóknar veltitöflur og hafa fullt gagn af þeim.
Leiðbeinendur
Halldór Kristjánsson verkfræðingur og Valgerður Halldórsdóttir, verkfræðingur og Ph.D.
Námsgögn
Íslensk kennslubók um veltitöflur og ljósrit.


Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.