PowerPoint - áhrifaríkur málflutningur

Almennt um námskeiðið

Með PowerPoint má útbúa vönduð og eftirtektarverð nýsigögn, s.s. glærur, litskyggnur, námsgögn og skjásýningar. Fyrirlesarinn hefur aðgang að mörg hundruð tilbúnum bakgrunnum og þarf aðeins að bæta við lykilorðum eða myndum til þess að útbúa litfagrar sýningar máli sínu til stuðnings. Bæta má við hreyfimyndum og hljóðupptökum sem auka áhrif skjásýninga verulega. Námskeiðið hentar sérstakleg vel öllum þeim sem þurfa að flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan hátt.  

Forkröfur

Þátttakandi verður að hafa gott vald á tölvum og grunnatriðum ritvinnslu til þess að hafa full not af námskeiðinu.  

Dagskrá

 

Meðal þess sem kennt er á námskeiðinu er þetta:

  • Lykilatriði við undirbúning málflutnings og hvernig má ná sem bestum árangri.
  • Ný glærusýning búin til með eða án sniðskjals.  
  • Hnappastikurnar í PowerPoint.  
  • Glærusmiðurinn og hvernig má nota hann til að flýta glærugerðinni.  
  • Unnið með texta í PowerPoint.  
  • Táknum fremst í línu breytt.  
  • Litir og litabreytingar.
  • Litaðri glæru breytt í svart-hvíta.
  • Bakgrunnur, bakgrunnslitir, stígandi, mynstur í bakgrunni og bakgrunnsáferð.  
  • Textareitir, breytingar á þeim og gerð nýrra textareita.  
  • Gerð lista, taflna, myndrita og skipurita í PowerPoint.  
  • Teikningar, ljósmyndir og hreyfimyndir.  
  • Útlína notuð við glærugerð.  
  • Glærufyrirlestur með hjálp Word.  
  • Glæruröðun, glærur faldar og stjórnað hvernig þær birtast.  
  • Glærur sýndar með hjálp skjávarpa.  
  • Minnispunktar fyrirlesarans.  
  • Haus- og fótlína glæru.  
  • Grunnglærur (master), gerð þeirra og breyting.  
  • Gerð glærusniðs.  
  • Teiknað í PowerPoint.  
  • WordArt til að móta texta á djarfan og skemmtilegan hátt.  
  • Prentun glærusýninga.  
  • PowerPoint sem kynningartæki.  
  • Sjálfvirk glærusýning.  

 

Með markvissri kennslu og skemmtilegum æfingum nærð þátttakandinn góðum tökum á PowerPoint og skarar fram úr öðrum að loknu námskeiði.  

Markmið

Að loknu námskeiði á þátttakandinn að geta búið til glærusýningar og kynningar, af öryggi, sem tekið er eftir.  

Kennslubók/kennslubækur

Íslensk handbók um Power Point og ljósrit

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.