Outlook fyrir byrjendur

Almennt um námskeiðið

Outlook er fjölþætt forrit til samskipta með tölvupósti, til að bóka fundi, halda utanum verkefni, til tímastjórnunar og til þess að skrá og viðhalda upplýsingum um tengiliði og samskiptum við þá. Í Outlook er einnig öflugt dagbókarkerfi og minnismiðakerfi og kerfi sem heldur sjálfvirkt utan um allt það helsta sem gert er í tölvunni (ferilskráning).  Með því að samhæfa póst, tengiliði, verkefni og annað úr Outlook við farsímann hefur notandinn alltaf aðgang að nýjustu upplýsingum. Forritið er því öflugur fylginautur allra þeirra sem annt er um tíma sinn, tengiliði og verkefni.  Outlook er sérlega hentugt fyrir fyrirtæki sem vilja bæta samskipti, auðvelda tímastjórnun og verkefnastýringu og halda betur utan um tengiliði og viðskiptavini.  

Dagskrá

 

  • Senda og taka á móti tölvupósti, bæði innanhúss og utan. Viðhengi send, sjálfvirk flokkun pósts með reglum, amapósti (ruslpósti) eytt og sjálfvirk svörun pósts. 
  • Geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti við þá. Flokkun tengiliða, gerð hóplista, listi yfir samskipti við tengilið ofl. 
  • Halda dagbók, bóka fundi og sinna tímastjórnun. Endurteknir atburðir, fundarboðanir, prentun dagbókar og fleira. 
  • Auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum. 
  • Skrifa á minnismiða, geyma þá og flokka. 
  • Halda ferilskrá yfir vinnu í tölvunni eða þá sem tengist völdum tengiliðum.   

 

Markmið

Að loknu námskeiði á þátttakandinn að vera fær um að nota Outlook til utanumhalds um verkefni sín og tímaskráningar auk þess að vera orðinn fær tölvupóstnotandi.  

Kennari/kennarar

Námskeiðið kenna fastráðnir kennarar okkar.  

Kennslubók/kennslubækur

Íslensk handbók um forritið Outlook. 

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.