Access I: Almenn gagnagrunnsgerð

Almennt um námskeiðið

Þetta námskeið er ætlað öllum þeim sem þurfa að safna upplýsingum, vinna úr þeim og setja fram með fjölbreyttum hætti. Microsoft Access er mjög fjölhæfur gagnagrunnur sem ekki krefst sérþekkingar notandans á gagnagrunnskerfum til þess að ná árangri. Á námskeiðinu er eftirfarandi kennt:

Forkröfur

Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf að hafa góða almenna þekkingu á notkun Office forritanna og Windows.

Dagskrá

  • Grunnatriði við smíði gagnagrunna: Hvernig á að búa til og viðhalda gagnagrunnstöflum, mynda vensl á milli þeirra og tryggja að upplýsingar séu ekki endurskráðar.
  • Að afrita ytri gögn inn í töflur.
  • Röðun og síun gagna í töflum.
  • Að gera fyrirspurnir sem sameina upplýsingar úr mörgum töflum, finna það sem beðið er um og reikna út ný gildi. Innsláttur gagna í fyrirspurnir sem skila sér í töflur.
  • Að búa til skýrar innsláttarmyndir, með hnöppum, valmyndum og innskáttur í þær prófaður.
  • Uppsetning á skýrslum, sem byggja á mörgum töflum og hafa reiknuð svæði, millisummur og heildarsummur, en einnig er kennd gerð límmiða.

Á námskeiðinu er búinn til einn heilsteyptur gagnagrunnur og í honum tekin margvísleg dæmi sem styrkja þekkinguna á forritinu og nýtast þátttakandanum vel að því loknu.

Markmið

Að hafa skilning og þekkingu á gagnagrunnsgerð og vera fær um að smíða eigin gagnagrunna. Að hafa næga þekkingu til að sækja Access framhaldsnámskeið okkar.

Leiðbeinandi

Námskeiðið kennir Halldór Kristjánsson, verkfræðingur og sérfræðingur í Access.

Námsgögn

 Microsoft Office Access 2013 Step-by-step ásamt íslenskum æfingum.

Ábendingar um framhald

Í framhaldi af þessu námskeiði er gott að taka námskeiðið Access II fyrir lengra komna.

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.