Adobe Lightroom ljósmyndavinnsla

Frábært námskeið um forritið sem fagmennirnir nota. Allt utanumhald um ljósmyndir verður einfaldara, lagfæringar mynda betri og myndirnar njóta sín enn betur með aðstoð þeirrar tækni sem Lightroom frá Adobe býr yfir.

Markmið:

Að geta unnið af öryggi með eigin ljósmyndir í tölvu og hafa nægilega þekkingu til þess að lagfæra liti, birtu og aðrar stillingar ljósmyndar. 

Dagskrá

 

  • Myndasöfn, flokkun mynda og merkingar. Leit í myndasafni.
  • Leiðrétting stillinga á myndum, skurður og frekari vinnsla ljósmyndanna.
  • Tenging ljósmynda við landabréf og notkun GPS hnita.
  • Glærusýningar, prentun o.fl.
  • Gerð ljósmyndabóka í Lightroom.

 

Þátttakendur geta sett fram spurningar um atriði sem þeir hafa áhuga á að kynnast og verður leyst úr því eftir bestu getu.

Leiðbeinandi:

Halldór Kristjánsson, áhugaljósmyndari, en hann hefur tekið ljósmyndir um áratugaskeið og var um tíma ljósmyndari fyrir íslenskan vörulista.

Námsgögn:

Glærur á íslensku og ensk kennslubók um Lightroom. 

Áskilinn er réttur til að breyta tímasetningum og fresta námskeiði ef rík ástæða er til. Lýsingar eru með fyrirvara um hugsanlegar villur sem kunna að leynast í textanum. Hægt er að bóka sig á námskeið þar sem eru biðlistar.