|
Afsláttur af verði námskeiða
Verð í stundatöflu okkar (listaverð)
er staðgreiðsluverð sem greitt er við upphaf námskeiðs.
Þátttakendur geta áunnið sér afslátt með því að sækja fleiri en
eitt námskeið hjá okkur eða með því að uppfylla þau skilyrði sem
fram koma á þessari síðu.
Magnafsláttur
Séu keypt tvö eða fleiri námskeið
hjá okkur og gengið frá greiðslu við upphaf námskeiðs er veittur
sérstakur afsláttur sem er 7%.
Afsláttur til þeirra
sem sótt hafa námskeið hjá okkur
Þeir sem hafa sótt eitt eða fleiri
námskeið hjá okkur njóta sjálfkrafa 7% afsláttar sé gengið frá
greiðslu við upphaf námskeiðs.
Afsláttur til félaga
í VR, Eflingu og öðrum stéttarfélögum
Við höfum gert afsláttarsamninga við
mörg stéttarfélög þeirra á meðal eru VR, Efling, Vélstjórafélag
Íslands og fleiri. Afsláttur getur numið allt að 10% á stystu
námskeiðunum og reiknast af listaverði þeirra.
Afsláttur til félaga
í Lionshreyfingunni
Félagar í Lionshreyfingunni á
Íslandi fá 10% afslátt frá verði námskeiða sem eru 15
klukkustundir eða styttri.
Einkaklúbbsafsláttur
Félagar í Einkaklúbbinum njóta
afsláttar hjá okkur í samræmi við samning eins og hann er á
hverjum tíma.
Afsláttur til
atvinnulausra
Þeir sem eru atvinnulausir og sækja
nám sem styrkt er af Vinnumálastofnun fá 15% afslátt frá
námskeiðsverði hjá okkur.
Stéttarfélög styðja
félagsmenn sína til náms hjá okkur
Flest stéttarfélög styðja félagsmenn
sína myndarlega til náms hjá okkur. Leitaðu upplýsinga hjá þínu
stéttarfélagi um styrkupphæð og fyrirkomulag.
Tilboðsverð eða
niðurfelling afsláttar
Afsláttur er ekki veittur ef um
tilboðsverð er að ræða. Undantekning frá þessari reglu er
afsláttur fyrir atvinnulausa, hann er af verði allra námskeiða.
Afsláttur fellur niður ef ekki er
staðið við umsamda greiðsluskilmála. |