MCP 70-290: Windows 2003 Server

Almennt um námskeiðið
Þetta nýja námskeið er miðað við að gera þátttakandann færan um að reka tölvunet og tengdar einmenningstölvur, þannig að kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu lækkar. Windows 2003 er arftaki Windows 2000 og er í flestu betra og öruggara stýrikerfi. Námskeiðið hentar vel fyrir þá sem vilja kynnast þessu stýrikerfi frá grunni og/eða stefna á að taka Microsoft Certified Professional (MCP) gráðu.

Námskeiðið er sérstaklega ætlað fyrir smærri fyrirtæki, skóla, tölvudeildir, deildir innan fyrirtækja og einstaklinga sem vilja taka að sér að sjá um rekstur tölvuneta.
 
Dagskrá
  • Grunnatriði netfræðinnar, Ethernet, kapalkerfi, beinar, ISDN, leigulínur víðnet o. fl.
  • Val á búnaði í net. Hversu öflugan netþjón þarf, hvers konar netspjöld, beina og annan búnað.
  • Helstu eiginleikar Windows 2003, skipulagning Windows 2003 nets og uppsetning.
  • Tenging Windows XP við Windows 2003 net og í innbyrðis jafningjanet. TCP/IP, IPX og fleiri samskiptahættir teknir fyrir.
  • Tenging prentara og prentmiðlun.
  • Skilgreining notenda og hópa, aðgangsréttindi og drifvarpanir. Aðgangur að diska- og skráarkerfi Windows 2003 og öryggismál.
  • Uppsetning og skilgreining Windows Directory og netstjóra. Margir netstjórar í sama neti.  Mjög er stuðst við stjórnborð (Control Panel) í þessum hluta.
  • Notendastaðlar og ræsifjölvar.
  • Farið yfir mörg hjálparforri sem fylgja Windows 2003 en þau má m. a. nota til: afritatöku, aðgangsstjórnunar, umsjónar diska s. s. við speglun, skoðunar á atburðaskrám (log), margskonar eftirlits og bilanaleitar, stjórnunar innhringiaðgangs og neteftirlits.
  • Intra- og Internettengingar við Windows 2003 kynntar.
 
Markmið
Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að geta sjálfir séð um eftirlit og rekstur nets og leyst algengustu vandamál.
 
Kennslustundir/einingar
3 einingar
 
Kennari/kennarar
Leiðbeinendur verða: Guðmundur P. Pálsson, MCSE, kerfistjóri hjá Parlogis og Halldór Kristjánsson, verkfræðingur og MCP, báðir með mjög mikla reynslu af stjórnun og uppbyggingu neta og kennslu á netnámskeiðum.
 
Kennslubók/kennslubækur
MCSA/MCSE Self-Paced Training Kit (Exam 70-290): Managing and Maintaining a Microsoft Windows Server 2003 Environment
 
Tími og dagsetning
Smellið hér
 
Til baka
 

Athugið: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms hjá okkur.

Heimasíða | Tölvunám | Ráðgjöf | Netklúbbur | Bækur | Fyrirtækið | Tölvuvísir

Heimasíða (Our home page)
okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.