ASP .NET vefforritun

Almennt um námskeiðið
Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja auka kunnáttu sína í vefsmíði og læra á nútíma vefforritunarumhverfi.
 
Forkröfur
Nauðsynleg undirstaða er góð þekking á vefsíðugerð, HTML málinu og grunnþekking á gagnagrunnum. Einnig er æskilegt að þátttakendur hafi innsýn í forritun.
 
Dagskrá
ASP.NET er mjög öflugt forritunarumhverfi fyrir vefsíðugerð sem á vaxandi vinsældum að fagna. Á þessu námskeiði er kennt að gera vefsíður með ASP.Net tækni og forritunarmálið sem kennt er heitir C#. Farið verður í grunn atriði C# forritunar og læra þátttakendur að nota C# og SQL (Structure Query Language) saman, til að vinna með gögn úr gagnagrunnum. Notast verður við VisualStudio.net forritunarumhverfi, Internet Information Server og Access gagnagrunn.
 
Markmið
Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta gert vefsíður með ASP.NET forritunarmálinu.
 
Kennslustundir/einingar
36 kennslustundir/1 eining
 
Kennari/kennarar
Sigurjón Ingi Garðarsson, tölvunarfræðingur og forritari
 
Kennslubók/kennslubækur
Notaðar eru enskar kennslubækur ásamt hugbúnaði frá Microsoft.
 
Tími og dagsetning
Smellið hér
 
Til baka
 

Athugið: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms hjá okkur.

Heimasíða | Tölvunám | Ráðgjöf | Netklúbbur | Bækur | Fyrirtækið | Tölvuvísir

Heimasíða (Our home page)
okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.