Stillingar á forritunum Internet Explorer og Netscape

Til þess að vefskoðarinn, sem notaður er til þess að kanna veraldarvef Internetsins virki á réttan hátt er nauðsynlegt að svonefndar Proxy stillingar séu réttar.

Netscape

Í útgáfum 2.0 og 3.0 af Netscape er valið Options og Network Preferences. Þvínæst er smellt á flipann sem nefnist Proxies og merkt við Manual Proxy Configuration og síðan á View. Ætti myndin sem þá birtist að líta út eins og hér að neðan. Í útgáfu 4.0 er smellt á Edit, Preferences, Advanced og Proxies.

Internet Explorer

Notendur Internet Explorer ættu að velja View og Options (útgáfur fyrir 4.0). Í valmyndinni sem þá birtist er smellt á flipann Connections. Á myndinni sem þá birtist er sett hak í reitinn Connect through a Proxy server. Næst er smellt á hnappinn Settings. Í efstu línuna (HTTP) er skrifað proxy.tv.is og í reitinn Port er talan 8080 skrifuð. Þá er sett hak í reitinn neðst í sömu valmynd þar sem stendur Use the same proxy server for all protocols. Valmyndin ætti þá að líta út eins og sjá má hér fyrir neðan.

Í Internet-Explorer 5.0 er stillingarnar að finna í valmyndinni Tools undir Internet Options. Valið er spjaldið Connection og síðan smellt á hnappinn Settings... Þar er hægt að breyta Proxy stillingunni.

Heimasíða | Tölvunám | Ráðgjöf | Netklúbbur | Bækur | Fyrirtækið | Tölvuvísir

Heimasíða (Our home page)
okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.