Uppsetning á innhringingu fyrir Macintosh tölvur

Macintosh notendum standa til boða fjölmörg forrit til þess að tengjast Internetmiðstöðinni. Mest er um að notast sé við forritið FreePPP. Fylgir lýsing á uppsetningu á tengingu með FreePPP hér að neðan.

freesetup1.JPG (14898 bytes)

Þeir sem hafa FreePPP á tölvum sínum smella á táknmyndina af símanum, efst til hægri hvítu ræmunni á skjáborðinu. Þá birtist valkosturinn FreePPP setup. Ef ekki kemur í ljós stór valmynd, heldur lítil eins og sést hérað ofan er smellt á litla þríhyrninginn neðst til vinstri. Opnast þá stærri valmynd með fleiri valmöguleikum.

(Ef FreePPP setup finnst ekki er rétt að leita að orðinu FreePPP með leitarskipun stýrikerfisins og tvísmella síðan á það forrit sem hún finnur.)

accounts1.JPG (23947 bytes)

Smellt er á flipann Accounts. Þar sem nýja tengingin er nokkuð frábrugðin þeirri sem hingað til hefur verið notuð, er best að smella á hnappinn New…. Er þá sett upp ný tenging.

Óhætt er að eyða þeirri tengingu út af listanum sem hingað til hefur verið notuð þar sem hún virkar ekki frá og með 30. september 1999. Það er gert með því að smella á heiti hennar í Accounts og síðan á hnappinn Delete.

account.JPG (25373 bytes)

Í þessari myndinni sem birtist þegar smellt er á hnappinn New í Accounts er tengingunni gefið heiti í reitnum Server name. Gott er að velja heiti sem minnir á Tölvu- og verkfræðiþjónustuna.

Viðeigandi upplýsingar eru færðar í reitina eins og sýnt er á myndinni hér á undan. Færið það notandanafn og leyniorð sem þið hafið notað hingað til í reitina User name og Password. 

Smellið síðan á Connection flipann og stillið hraða samskiptanna (Port Speed). Veljið  mesta hraða sem mótaldið leyfir sem er oftast 115.200. Aðrir algengir hraðar eru 57.600, 38.400 og 19.200. Best er að velja hæsta hraðann en lækka hann ef tengingin er óstöðug.

Einnig verður að velja Flow Control CTS & RTS (DTR) til þess að tryggja örugg samskipti. Loks er smellt á Options flipann og athugað að stillingar séu eins og á myndinni hér á eftir:

Þegar búið er að yfirfara allar stillingar er smellt er á hnappinn OK og síðan smellt á flipann  General. 

Þar er hægt að opna stjórnborðið TCP/IP með því að smella á hnappinn Open TCP/IP í General spjaldinu. Einnig má opna stjórnborðið með því að velja Stjórnborð og síðan TCP/IP, MacTCP, eða það nafn annað sem þessu stjórnborði er gefið (mismunandi eftir stýrikerfum).

Tcpip.jpg (19348 bytes)

Valkostirnir í stjórnborðinu TCP/IP eru stilltir eins og sýnt er á myndinn hér að ofan. Hægt er að setja tv.is í reitinn, leita í svæðum, ef þessar stillingar eru ekki fullnægjandi.

Ef um er að ræða MacTCP þá birtist þessi mynd:

Ekki er hirt um stillinguna í IP-netfang, heldur smellt á hnappinn Meira. Þá birtist þessi mynd:

Aðeins þarf að smella í reitinn Frá miðlara og staðfesta síðan með því að smella á hnappinn í lagi, ef Upplýsingar um nafnamiðlara svæðis eru eins og myndin sýnir. 

ATHUGIÐ að tölur í Netfang gáttar og Netfang geta verið aðrar en sýndar eru á myndinni. Ekki skal hirða um það!

Öllum stillingum er nú lokið og hægt að tengjast Internetinu!

 

Heimasíða (Our home page) okkar - Kort (Map of Site) af vefnum

Tölvu- og verkfræðiþjónustan • Grensásvegi 16 • 108 Reykjavík • Sími: 520 9000 •  Fax: 520 9009

Kennitala: 510286-2009 • Vsknr./VAT: 74860 • Skrifstofan er opin 9:00-17:00 á virkum dögum.